Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
111. löggjafarþing 1988–1989.
Nr. 11/111.
Þskj. 871 — 112. mál.
Þingsályktun
um iðgjöld vegna bifreiðatrygginga.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera ráðstafanir til þess að draga úr kostnaði við bifreiðatryggingar hér á landi, þannig að tryggingaiðgjöld bifreiða verði sambærileg við það sem gerist í nágrannalöndum.
Samþykkt á Alþingi 17. apríl 1989.