Ferill 224. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 224 . mál.


Nd.

885. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyting á l. nr. 77/1979, um Háskóla Íslands, sbr. l. nr. 8/1985.

Frá Birgi Ísl. Gunnarssyni.



    Í stað 4. málsl. 4. efnismgr. 1. gr. komi: Engum manni má veita prófessorsembætti, dósentsstarf eða lektorsstarf við Háskólann nema meiri hluti dómnefndar telji hann hæfan. Skylt er ráðherra að veita umsækjanda embættið eða starfið ef hann hlýtur 2 / 3 atkvæða þeirra sem viðstaddir eru deildarfund.