Ferill 208. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 208 . mál.
Nd.
939. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á erfðalögum, nr. 8/1962, með síðari breytingum.
Frá allsherjarnefnd.
1. Við 3. gr. Í stað orðsins „hans“ í fyrri málsl. 1. efnismgr. komi: þess.
2. Við 15. gr. Greinin orðist svo:
. Lög þessi öðlast gildi 1. júní 1989.
3. Við 16. gr. Greinin orðist svo:
. Við lögin bætist ný grein, 63. gr., svohljóðandi:
. Ákvæði 3., 7.–10., 14., 16. og 31. gr. gilda ekki um lögerfðarétt, um setu í óskiptu búi eða um uppgjör fyrirframgreidds arfs eftir menn sem látnir eru fyrir 1. júní 1989.
. Meðan lög um skipan dómsvalds í héraði, lögreglustjórn, tollstjórn o.fl., nr. 74/1972, eru enn í gildi skulu þeir menn, sem eru skiptaráðendur samkvæmt fyrirmælum þeirra laga, gegna því hlutverki sem sýslumönnum er falið með lögum þessum.