Ferill 443. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 443 . mál.
Ed.
1078. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr. í Ed., 6. maí.)
1. gr.
Á eftir f-lið 29. gr. laganna komi nýr stafliður svohljóðandi:Sjúklingar sem eru til meðferðar á sjúkrastofnunum, sem starfa samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, og heilsutjónið eða örorkan er vegna læknisaðgerða eða mistaka starfsfólks sem starfar á þessum stofnunum.
2. gr.
5. mgr. 34. gr. laganna orðist svo:Örorkubætur greiðast ekki ef örorkutapið er metið minna en 10%.
3. gr.
Síðasti málsliður 1. mgr. 36. gr. laganna orðist svo: Þá skal með reglugerð ákveða árlegt framlag til að standast kostnað af bótum vegna þeirra sem um getur í f- og g-liðum 29. gr.4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.