Lánsfjárlög 1990
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Guðrún Agnarsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég fagna þessum sinnaskiptum nefndarinnar sem komu fram í máli hv. formanns fjh.- og viðskn. Ég tel að þau viti á gott og beri vott um smáljós í myrkrinu þó á morgun sé dimmasti dagur ársins. Ég vil minna hv. þm. á mjög jákvæðar og nauðsynlegar tillögur sem liggja til breytinga við fjárlög og verða afgreiddar von bráðar. (Gripið fram í.) Ég vona að sinnaskiptin nái einnig til þeirra.