Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Í þeirri von að hæstv. fjmrh. verði kominn klukkan hálf fimm þegar hæstv. viðskrh. gerir einnig ráð fyrir að vera kominn aftur til fundar mun forseti fresta þessum fundi til klukkan hálf fimm --- ef það er nægjanlegt fyrir hv. þm. sem biður um að fá að tala um þingsköp. Ætlar hv. þm. að gera athugasemdir eða vill hann ræða um þingsköp þrátt fyrir þessar upplýsingar?