Þingfundarstörf í efri deild
Föstudaginn 16. mars 1990


     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég hafði ekki hugmynd um að þessi málsmeðferð hefði verið ákveðin á miðvikudag og bið afsökunar á því sem ég hafði missagt um það. Ég heyri að forseti deildarinnar talar um að hann vilji ná samkomulagi um að fresta umræðunni til þriðjudags. Ég er reiðubúinn að ganga inn á það þegar í stað og þakka honum fyrir það.