Hlutafélög
Miðvikudaginn 21. mars 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. fjallaði um frv. um breytingu á lögum um hlutafélög og leggur til að það verði samþykkt eins og það kom úr Ed. Undir þetta skrifa allir viðstaddir nefndarmenn, Þórhildur Þorleifsdóttir, Friðrik Sophusson, Sverrir Sveinsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Ragnar Arnalds og Jón Sæmundur Sigurjónsson.
    Matthías Bjarnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins vegna veikinda.