Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Það kom fram hjá frsm. félmn., hv. 4. þm. Suðurl., að ég og hv. 14. þm. Reykv. hefðum verið fjarverandi við afgreiðslu þessa máls. Ég vil þess vegna láta þess getið að þær breytingar sem gerðar hafa verið á þessu frv. í félmn. Nd. og náðust fram fyrir tilstuðlan fulltrúa Sjálfstfl. í nefndinni eru til bóta miðað við upphaflega gerð frv. Þrátt fyrir það munum við, þingmenn Sjálfstfl. í hv. Ed., sitja hjá við afgreiðslu þessa máls.