Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 221 . mál.
Nd.
381. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Frá Þórhildi Þorleifsdóttur.
1. Við 1. gr. 3. efnismgr. orðist þannig:
Hlutaðeigandi bæjarstarfsmannafélag skal tilkynna fjármálaráðuneytinu fyrir 15. janúar 1990 hverjir starfsmanna óska eftir að vera áfram í viðkomandi félagi og skal það staðfest með yfirlýsingu starfsmanns, ella gildi um félagsaðild ákvæði 4.–5. gr.
2. Við 2. gr. Greinin orðist þannig:
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1990 og falla úr gildi 31. desember 1990.