Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 380 . mál.


Ed.

663. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 39/1988, um bifreiðagjald.

Frá minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Minni hl. hefur ekkert við það að athuga að gjalddaga bifreiðagjalds verði frestað til 1. apríl, enda liggi ljóst fyrir að gjaldið verði ekki hækkað. Til þess að tryggja að svo verði flytur minni hl. breytingartillögu um það efni. Verði hún felld greiðir minni hl. atkvæði gegn frumvarpinu.

Alþingi, 23. febr. 1990.



Halldór Blöndal,


frsm.


Ey. Kon. Jónsson.