Ferill 222. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 222 . mál.


Nd.

744. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 39/1988, um bifreiðagjald.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (PP, JSS, RA, GGÞ).



1.      Við 1. gr. Greinin orðist svo:    
         2. gr. laganna orðist svo:
         Bifreiðagjald skal vera 3,91 kr. fyrir hvert kílógramm af eigin þyngd bifreiðar. Sé bifreið þyngri en 1.000 kg skal að auki greiða 1,96 kr. fyrir hvert kílógramm af eigin þyngd bifreiðar sem er umfram 1.000 kg. Þó skal aldrei greiða lægra gjald en 2.000 kr. né hærra gjald 11.500 kr. af hverri bifreið á hverju gjaldtímabili, sbr. 1. mgr. 3. gr.
2.      Við 2. gr. Í stað orðanna „1. nóvember 1989, þ.e. 155,5 stig“ komi: 1. júní 1990.
3.      Við 3. gr. Greinin orðist svo:
         Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1990. Þó skal ákvæði til bráðabirgða I öðlast þegar gildi og innheimta bifreiðagjalds samkvæmt því koma til framkvæmda fyrir gjaldtímabilið 1. janúar 1990 til 30. júní 1990.
4.      Við bætist ákvæði til bráðabirgða I svohljóðandi:
         Bifreiðagjald fyrir gjaldtímabilið 1. janúar 1990 til 30. júní 1990 skal vera 3,40 kr. fyrir hvert kílógramm af eigin þyngd bifreiðar. Sé bifreið þyngri en 1.000 kg skal að auki greiða 1,70 kr. fyrir hvert kílógramm af eigin þyngd bifreiðar sem er umfram 1.000 kg. Þó skal aldrei greiða lægra gjald en 1.700 kr. né hærra gjald en 10.000 kr. af hverri bifreið á hverju gjaldtímabili, sbr. 1. mgr. 3. gr.
5.      Við bætist ákvæði til bráðabirgða II svohljóðandi:
         Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 3. gr. skal gjalddagi og eindagi fyrir gjaldtímabilið 1. júlí 1990 til 31. desember 1990 vera 1. október 1990.