Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 895, 112. löggjafarþing 356. mál: samningur um gagnkvæma aðstoð í tollamálum (aðild Færeyja).
Lög nr. 24 20. apríl 1990.
Ríkisstjórninni er enn fremur heimilt að staðfesta breytingu á samningnum sem gerð var með samningi 3. ágúst 1989.
Ákvæði samningsins með áorðnum breytingum skulu hafa lagagildi hér á landi.
Samningur þessi gildir ekki á Grænlandi að því er Danmörku varðar, né á Svalbarða, Jan Mayen eða á norskum landsvæðum utan Evrópu að því er Noreg varðar.
Þingskjal 895, 112. löggjafarþing 356. mál: samningur um gagnkvæma aðstoð í tollamálum (aðild Færeyja).
Lög nr. 24 20. apríl 1990.
Lög um breytingu á lögum nr. 94/1980, um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um gagnkvæma aðstoð í tollamálum.
1. gr.
Við 1. gr. laganna bætist ný mgr. svohljóðandi:Ríkisstjórninni er enn fremur heimilt að staðfesta breytingu á samningnum sem gerð var með samningi 3. ágúst 1989.
2. gr.
2. gr. laganna orðist svo:Ákvæði samningsins með áorðnum breytingum skulu hafa lagagildi hér á landi.
3. gr.
14. gr. í fylgiskjali með lögunum orðist svo:Samningur þessi gildir ekki á Grænlandi að því er Danmörku varðar, né á Svalbarða, Jan Mayen eða á norskum landsvæðum utan Evrópu að því er Noreg varðar.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 6. apríl 1990.