Ferill 493. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
112. löggjafarþing 1989–1990.
Nr. 23/112.
Þskj. 1063 — 493. mál.
Þingsályktun
um fullgildingu á alþjóðasamþykkt nr. 122 um stefnu í atvinnumálum.
Alþingi ályktar að veita ríkisstjórninni heimild til þess fyrir Íslands hönd að fullgilda samþykkt nr. 122, um stefnu í atvinnumálum, sem gerð var á 48. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í Genf 9. júlí 1964.
Samþykkt á Alþingi 26. apríl 1990.