Ferill 235. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 235 . mál.


Nd.

372. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóra og Snorra Olsen, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins, en tveir nefndarmanna, Matthías Bjarnason og Friðrik Sophusson, áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum er fram kunna að koma.

Alþingi, 19. des. 1990.



Páll Pétursson,


form., frsm.

Guðmundur G. Þórarinsson,


fundaskr.

Ragnar Arnalds.


Matthías Bjarnason.

Friðrik Sophusson.

Þórhildur Þorleifsdóttir,


með fyrirvara.


Jón Sæmundur Sigurjónsson.