Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 103 . mál.


Sþ.

861. Breytingartillaga



við till. til þál. um úrbætur á aðstæðum ungmenna sem flosna upp úr skóla.

Frá félagsmálanefnd.



    Tillgr. orðist svo:
    Alþingi ályktar að beina því til ríkisstjórnarinnar að koma á fót samstarfshópi á vegum ráðuneyta og sveitarfélaga til að gera tillögur um samræmdar aðgerðir sem miði að því að aðstoða ungmenni sem flosnað hafa upp úr skóla. Samstarfshópurinn fjalli einnig um sameiginlegar forvarnir gegn þessum vanda.
    Samstarfshópurinn verði skipaður fulltrúum tilnefndum af dómsmála-, félagsmála- menntamála- og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, stærstu sveitarfélögunum og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    Samstarfshópurinn skili niðurstöðum fyrir árslok 1991.