Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 203 . mál.


Ed.

879. Nefndarálit



við frv. til stjórnsýslulaga.

Frá minni hl. allsherjarnefndar.



    Minni hl. er samþykkur markmiði frumvarpsins sem felur í sér nauðsynleg nýmæli frá ríkjandi réttarástandi og bætir úr skorti á skráðum réttarreglum um stjórnsýsluna.
    Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu var það lagt fram til kynningar á 112. löggjafarþingi og lagt fram aftur með nokkrum breytingum á 113. löggjafarþingi. Nefndin hefur að mati minni hl. alls ekki fjallað nógu ítarlega um frumvarpið og umsagnir um það og ljóst er að enn hafa þeir, sem gerst þekkja til stjórnsýsluréttar, ýmsar athugasemdir fram að færa.
    Þar að auki telur minni hl. að með frumvarpinu séu ráðherra gefnar of víðtækar heimildir til að setja reglugerðir og bendir í því sambandi á ákvæði 5. gr. frumvarpsins og lokamálslið 13. gr.
    Minni hl. vill þó ekki hindra að frumvarpið fái umfjöllun í þinginu en treystir sér að svo stöddu ekki til að taka þátt í afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. mars 1991.



Danfríður Skarphéðinsdóttir.