Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (um þingsköp) :
    Frú forseti. Ég þakka leiðbeiningu fyrrv. forseta þingsins og veit að hún er alveg þess fullfær að veita mönnum leiðbeiningar. Ég hef heyrt þær sögur af hennar þingstjórn. En ég tel alveg sjálfgefið að þingmenn hafi leyfi til þess að lýsa því yfir að þeir vilji beita sér fyrir einu eða öðru.