Þingsköp Alþingis
Þriðjudaginn 28. maí 1991


     Ingi Björn Albertsson :
    Hæstv. forseti. Hér er gerð tillaga um að þær brtt. sem fram komi fyrir 3. umr. um lagafrv. og fyrir síðari umr. um þáltill. fái umfjöllun í nefnd. Þeir þingmenn sem vilja bæta vinnubrögð í nefndum og fá þar vandaðri vinnubrögð hljóta að styðja slíkar tillögur. Ég geri það og segi því já.