Vegáætlun 1991--1994

88. fundur
Þriðjudaginn 25. febrúar 1992, kl. 14:35:00 (3735)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Mig langar til að upplýsa hv. þm. um það að ræðutími í umræðunni er skv. 44. gr. þingskapa átta mínútur tvisvar sinnum en flutningsmanni er heimilt að tala í fimmtán mínútur. Ég kannaði það á meðan hv. þm. var í ræðustól hvort óskað hefði verið eftir því að þessi umræða færi fram skv. 55. gr. þingskapa og hvort ósk hefði komið fram um það áður en umræðan hófst. Mér er tjáð að svo hafi ekki verið þannig að þá fer umræðan fram skv. 44. gr. þannig að ræðutími flutningsmanns er fimmtán mínútur en annarra átta mínútur.