Lán til viðhalds félagslegra íbúða

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 13:55:00 (7243)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég hygg að það séu eðlileg vinnubrögð að gera sér grein fyrir því hvað kostar að opna fyrir slíkan lánaflokk og hvernig á að fjármagna hann áður en ákvörðun er tekin um að opna fyrir hann. Það var ósk félmrn. að Húsnæðisstofnun upplýsti það. Það hefur enn ekki verið gert og eins og ég sagði var málinu vísað beint til Alþingis áður en það lá fyrir.