Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 15:31:00 (928)

     Björn Bjarnason (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. 8. þm. Reykn. vísaði til skoðanakannana í máli sínu, kannana sem voru gerðar fyrir nokkrum vikum. Mig langaði af því tilefni til að spyrja hann að því hvort hann telji að það sé hin eindregna afstaða sem Albþ. hefur mótað gegn EES sem hefur leitt til þess að fylgi Alþb. hefur snarminnkað samkvæmt skoðanakönnunum eða hvort það sé sú staðreynd að menn eru að átta sig á hinu raunverulega eðli flokks hans.