Skattamál

86. fundur
Laugardaginn 19. desember 1992, kl. 00:53:35 (3856)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill taka fram að nú eru tveir hv. þm. á mælendaskrá í umræðum um þetta dagskrármál og ætlun forseta er að ljúka þeirri umræðu en taka eigi fyrir umræðu um fleiri dagskrármál sem hafði þó verið ætlunin. Forseti mun láta athuga það hvort unnt sé að verða við þeim óskum sem fram komu í máli hv. 2. þm. Vestf.