Ferill 72. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 72 . mál.
74. Tillaga til þingsályktunar
um sveigjanlegan vinnutíma.
Flm.: Anna Ólafsdóttir Björnsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Einarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir því í samráði við félög opinberra starfs
Greinargerð.
Þingsályktunartillaga þessi var lögð fram á vorþingi 1992 en varð ekki útrædd. Hún er nú endur
Kostir og gallar sveigjanlegs vinnutíma hafa ekki fengið mikla umfjöllun. Leiða má rök að því að það sé bæði launþegum og vinnuveitendum í hag að skipulag vinnutíma komi sem best til móts við þarfir beggja.
Með sveigjanlegum vinnutíma er átt við að vinnutími byggist á samkomulagi starfsmanns og vinnuveitanda. Atvinnurekandi og starfsmaður geri samning um vinnutíma eftir þörfum starfs
Á einstaka vinnustað hefur verið boðið upp á sveigjanlegan vinnutíma og hafa þær tilraunir þótt gefast vel. Kostir sveigjanlegs vinnutíma eru einkum þessir: Starfsmaður vinnur á þeim tíma sem hentar honum best vegna fjölskylduaðstæðna og annars sem hann telur mikilvægt. Það leiðir yfir
Helstu vandkvæði við að taka upp sveigjanlegan vinnutíma er sennilega smæð margra íslenskra stofnana og fyrirtækja, einkum þeirra sem hafa fastan opnunartíma. Leita verður lausna á því máli sem tryggir hagsmuni launþega og vinnuveitenda.
Í ritinu „Streita, vinna og heilsa í velferðarþjóðfélagi“ eftir Ólaf Ólafsson landlækni segir m.a.:
„Streita er flókið vandamál og á engan hátt fullrannsakað fyrirbæri. Úr niðurstöðum ýmissa erlendra rannsókna má lesa að eðli vinnu skiptir oft meira máli en atvinnugrein. Hröð og tilbreytingar
Þessu virðist öðruvísi farið hér á landi þar sem atvinnurekendur og háskólamenntaðir virðast þjást mest allra stétta af streitu þó að þeir ráði að öllu jöfnu meira um vinnutilhögun en aðrir. Skýr
Samkvæmt þessum upplýsingum er álagið mest á yngsta fólkið sem er oft með börn og að koma yfir sig þaki. Þessum hópi væri mestur akkur í sveigjanlegum vinnutíma og auk þess þyrfti að koma til stytting vinnutíma.
Langur vinnudagur er hlutskipti flestra Íslendinga. Jafnframt er ýmis félagsleg þjónusta, svo og barnagæsla og umönnun aldraðra í heimahúsum, af skornum skammti. Skóladagur grunnskólabarna er stuttur og sundurslitinn. Samverustundir fjölskyldunnar eru af skornum skammti í þeirri vinnu
„Tvennir af hverjum þrennum foreldrum forskólabarna telja að stjórnvöld styðji frekar illa eða mjög illa við bakið á foreldrum með forskólabörn. Innan við einir af hverjum fimmtán telja að stjórnvöld styðji vel við bakið á foreldrum með forskólabörn . . .
Foreldrar með forskólabörn virðast almennt óánægðir með hvernig stjórnvöld taka á þeim mála
Úr þessu ástandi verður að bæta. Efla þarf leikskóla, koma á samfelldum, lengdum skóladegi nú þegar og bjóða upp á meiri þjónustu fyrir aldraða í heimahúsum en jafnframt þarf að huga að því að gefa sem flestum kost á að taka tillit til þarfa fjölskyldunnar er þeir skipuleggja vinnutíma sinn. Fjarvistir foreldra frá börnum eru meiri en góðu hófi gegnir og það getur haft alvarleg vandamál í för með sér í framtíðinni ef foreldrum verður ekki gert kleift að taka meira tillit til fjölskyldna sinna en nú er gert.
Nokkuð algengt er að fólk reyni að laga vinnutíma sinn að fjölskyldunni en svigrúm til þess er mjög lítið miðað við núverandi aðstæður. Oftast eru það konur sem þurfa að vinna sundurslitinn vinnudag vegna fjölskylduaðstæðna. Nokkuð algengt er að konur þurfi að taka á sig aukavinnu um kvöld og helgar til að geta jafnframt sinnt ungum og öldnum í fjölskyldunni. Það er hins vegar fátíð
Rétt er að geta þess að í umræðu á Alþingi 20. febrúar 1992 kom fram að unnið er að því að Ís
Ýmsar kannanir hafa verið gerðar á vinnutíma Íslendinga. Í þessum könnunum hefur fyrst og fremst verið spurt um afstöðu fólks til lengdar vinnutíma en sjaldan um sveigjanlegan vinnutíma. Á þessu eru þó til undantekningar. Í jafnréttiskönnun Bandalags háskólamanna frá því í desember 1989 eru könnuð viðhorf til sveigjanlegs vinnutíma. Flestir (62,4% karla og 63,6% kvenna) telja vinnutíma sinn of langan fyrir fólk með börn og fjölskyldu. En það er þó athyglisvert að sjá hve margir, einkum konur, telja að sveigjanlegur vinnutími vegi einnig þungt með tilliti til fjölskyldu
Væri sveigjanlegur vinnutími tekinn upp á Íslandi mundi það geta stuðlað að því að jafna for
Sveigjanlegur vinnutími gæti jafnframt aukið vellíðan í starfi sem hlýtur að vera sameiginlegt hagsmunamál launþega og atvinnurekenda.
Úr Lífskjör og lífshættir á Íslandi.
(Eftir Stefán Ólafsson, júní 1990.)
(Töflur myndaðar.)
Úr jafnréttiskönnun Bandalags háskólamanna.
(Desember 1989.)
(Töflur myndaðar.)