[15:39]
Svavar Gestsson :
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Norðurl. e. fyrir að hafa borið þessa fsp. fram. Í upplýsingum sem fram komu frá hæstv. iðnrh. voru fjölmargar tölur og atriði sem ómögulegt var að henda reiður á í þeim upplestri sem hér fór fram. Því vil ég fara fram á það við hæstv. ráðherra að þessu svari verði dreift til þingmanna ásamt öðrum þeim tölum sem hæstv. ráðherra sleppti að lesa vegna tímaskorts.