Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Forseti vill geta þess að að lokinni atkvæðagreiðslu um 2. dagskrármálið fer fram utandagskrárumræða skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa að beiðni hv. 4. þm. Norðurl. e. Umræðan stendur í hálftíma og er um viðskiptahindranir Frakka gagnvart íslenskum fiskafurðum.