[21:36]
Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
Herra forseti. Ég fagna mjög þessari yfirlýsingu hæstv. landbrh. Ég lít svo á að það sé alveg ótvírætt hvernig hæstv. ráðherra muni greiða atkvæði hér í þinginu ef til atkvæða kemur um þessar greinargerðir hvor eigi að gilda og það er mjög ánægjulegt að hæstv. ráðherra skuli hafa gefið hér svo afdráttarlausa yfirlýsingu.