Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
Forseti vill taka fram áður en lengra er haldið að hún hafði þegar frestað umræðu um 10. dagskrármál og er það vegna þess að hæstv. forsrh. getur ekki verið viðstaddur umræðuna nú um sinn en honum er kunnugt um það að hans er óskað á fundinn og mun hann koma eins fljótt og verða má.