Framhaldsskólar

121. fundur
Mánudaginn 28. mars 1994, kl. 17:11:53 (5697)


[17:11]
     Kristín Einarsdóttir (andsvar) :
    Frú forseti. Aðeins örstutt. Það má vel vera að það komi upp ákveðin vandamál í þessu sambandi ef við samþykkjum þetta frv. fljótlega vegna þess að sumar sveitarstjórnir eru þegar búnar að skipa í skólanefndir, en ég vil bara segja að betri er hálfur skaði en allur.