Samfélagsþjónusta

130. fundur
Miðvikudaginn 13. apríl 1994, kl. 15:55:18 (6245)


[15:55]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég hygg að ég hafi ekki komist svo að orði að ég byggist við því að samgn. yrði sammála um niðurstöðu um þetta frv. Ég sagði þvert á móti að hér væri hreyt máli sem skoðanir væru mjög skiptar um og menn athuga frá mjög mismunandi sjónarhóli og er ekkert við því að segja. Ég held að það geti vel komið til greina og vil gjarnan ítreka það að þessi málaflokkur verði tekinn til sveitarfélaganna. Þá verður sú breyting að vera á frv. frá grunni og frv. þeirra hv. þm. Svavars Gestssonar og Steingríms J. Sigfússonar er ekki fullnægjandi ef menn hafa það í huga.