Tryggingagjald

152. fundur
Föstudaginn 06. maí 1994, kl. 01:45:52 (7395)


[01:45]
     Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Halldór Ásgrímsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Bara svo það valdi ekki misskilningi hjá hæstv. fjmrh. þá kemur það skýrt fram í okkar nál. varðandi þessi mál fyrir jólin, að þær tillögur sem við settum þar fram skiluðu ríkissjóði meiri tekjum en hæstv. fjmrh. lagði til. Þar af leiðandi höfum við þegar flutt tillögur í þessu máli og afstaða okkar, sem stóðum að því nál. fyrir jólin, í tryggingagjaldinu, er í fullu samræmi við það. Þannig að ef það er einhver sem hefur ekki viljað standa að því að ríkissjóður stæði betur að þessu leytinu þá er það hæstv. fjmrh.