Réttarfar, atvinnuréttindi o.fl.

23. fundur
Þriðjudaginn 26. október 1993, kl. 16:59:53 (674)


[16:59]
     Jón Helgason :
    Hæstv. forseti. Eins og fram kom hjá hæstv. dómsmrh. þá er hér verið að endurflytja eitt þeirra frv. sem lögð voru fram í fyrra vegna væntanlegrar aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu en ekki urðu þá útrædd eða hlutu afgreiðslu hér á Alþingi.
    Um mörg þessara mála urðu mjög skiptar skoðanir eins og öllum er kunnugt. Í þessu frv. eru einnig slík atriði og þau munu að sjálfsögðu verða skoðuð rækilega í nefndinni. En ég skal ekki tefja tímann með því að fara út í einstök atriði frekar að þessu sinni en það mun þá koma í ljós við nefndarstörfin hvert viðhorfið verður.