Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

61. fundur
Fimmtudaginn 16. desember 1993, kl. 01:01:56 (2763)

[01:01]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Ég held að hv. 1. þm. Austurl. hafi orðað það svo í upphafsræðu sinni um þetta mál að nauðsynlegt væri að hv. sjútvn. fengi nægjanlegan tíma til umfjöllunar um málið þannig að nefndarmenn a.m.k. gætu lesið gaumgæfilega þær skýrslur sem málinu fylgja. Ég vil fyrir mitt leyti stuðla að því að alla vega það svigrúm gefist fyrir hv. nefnd og vona að það fullnægi hv. þm. að fá það svar af minni hálfu hér.