Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

69. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 16:05:21 (3082)


[16:05]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Mér finnst það afar mikilvægt sem hæstv. félmrh. sagði hér um úthlutunarnefndirnar þó ég sé ekki sáttur við hennar svör eða undirtektir að öðru leyti og einnig mikilvægt og jákvætt það sem hún sagði um stöðu vörubílstjóra og ég bæti trillumönnunum við því þeir eru í sömu stöðu. Það verður auðvitað að taka á þessu máli. Hér er um bersýnilegt ranglæti að ræða og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin.