Ferill 376. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 376 . mál.


572. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um viðræður ríkisins og BSRB.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Hvaða skýring er á því að viðræður ríkisins og BSRB hafa ekki hafist um „breytingar og nýskipan í ríkisrekstri, sem stjórnvöld ákveða, þar sem m.a. verði rædd þau áform um einkavæðingu einstakra stofnana sem á döfinni eru á hverjum tíma og þau mál sem að starfsmönnum viðkomandi stofnana snúa“ eins og segir í bréfi fjármálaráðherra frá 28. nóvember 1993?
    Hvenær hyggst fjármálaráðherra hefja viðræður við BSRB?