Ferill 395. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 395 . mál.


596. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um fráveitumál sveitarfélaga.

Frá Gísla S. Einarssyni.



    Hvað líður úttekt á ástandi fráveitumála sveitarfélaga sem Alþingi ályktaði um 10. mars 1992? Hvað líður vinnslu málsins í ráðuneytinu? Hefur verið unnið í samráði við Samtök sveitarfélaga að framgangi þess? Hefur verið leitað eftir tilnefningu um fulltrúa annarra ráðuneyta í nefnd um málið?