Framkvæmd búvörusamningsins

84. fundur
Föstudaginn 03. febrúar 1995, kl. 12:19:48 (3848)


[12:19]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þm. Það eru áreiðanlega möguleikar til útflutnings á landbúnaðarvörum til Grænlands og eins til Færeyja meira en við höfum nýtt okkur. Samgönguráðherra Grænlands hefur hefur gert samning við Íslendinga um að greiða fyrir samgöngum á milli landanna og slíkur samningur er einnig í undirbúningi við Færeyinga. Það er enginn vafi á því að þegar meiri festa kemst á þessa flutninga þá skapast svigrúm til þess að nýta sér markaðsmöguleikana í þessum löndum báðum.