Aldursforseti (Pálmi Jónsson) :
Nú fer fram kosning forseta Alþingis samkvæmt 1. og 2. mgr. 3. gr. þingskapa. Ég óska eftir tilnefningu.
Tilnefning hefur borist um Salome Þorkelsdóttur, 2. þm. Reykn.
Ég vek athygli á því sem segir í upphafi 3. gr. þingskapa að í kjöri eru þeir einir sem tilnefndir eru og eigi hreyfa andmælum við því. Því verða atkvæði sem falla kunna á aðra þingmenn en þann sem tilnefndur er að teljast ógild atkvæði.