[17:04]
Páll Pétursson (andsvar) :
Herra forseti. Í stuttu máli, þessi tilskipun passar bara alls ekkert inn í íslenskar aðstæður og aðlagast ekki að íslensku hugarfari. Auðvitað verðum við að vinna þegar verkefnin eru fyrir hendi og hvíla okkur svo á milli en ekki fara að láta skammta vinnutímann svo sem gert er þar.