[14:16]
Páll Pétursson :
Frú forseti. Þar eð menn eiga samkvæmt þessari grein misjafnan bótarétt eftir því hvar þeir eiga heima á landinu þótt um hliðstæð tjón sé að ræða þá sé ég ekki að greinin samræmist mannréttindakafla stjórnarskrár þeirrar sem hér er í undirbúningi þar sem lögð er sérstök áhersla á jafnræðisregluna. Ég tel að þessi hugsun sem kemur fram í greininni brjót gegn þeim anda sem er í frv. og þess vegna segi ég nei.