Þingfrestun

75. fundur
Föstudaginn 30. desember 1994, kl. 02:12:15 (3513)

[02:12]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Frú forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 118. löggjafarþings, frá 30. desember 1994 til 25. janúar 1995.
Gjört í Reykjavík, 29. desember 1994.

Vigdís Finnbogadóttir.

_____________
Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 118. löggjafarþings, er frestað.
    Leyfi ég mér að óska hv. þm. og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum gleðilegs árs.