Ferill 8. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 8 . mál.
8. Frumvarp til laga
um rétt til launa í veikindaforföllum.
Flm.: Hjörleifur Guttormsson.
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 19/1979, um rétt verkafólks til uppsagnarfrests
frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla.
1. gr.
Við 5. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar svohljóðandi:
Til forfalla frá vinnu vegna sjúkdóma eða slysa samkvæmt lögum þessum teljast hvers kyns aðgerðir sem taldar eru nauðsynlegar af læknisfræðilegum ástæðum, rannsóknir og önnur meðferð að læknisráði enda þótt launþegi hafi ekki verið óvinnufær við upphaf læknismeðferðar.
Heilbrigðir líffæragjafar njóta réttar til launa í forföllum frá vinnu vegna líffæragjafar í samræmi við ákvæði laga þessara.
2. gr.
8. gr. laganna orðast svo:
Nú vill launþegi neyta réttar síns skv. 4.–6. gr. og skal hann þá, ef atvinnurekandi óskar þess, afhenda vottorð læknis er sýni að forföll hafi verið óhjákvæmileg, sbr. og ákvæði 5. mgr. 5. gr.
II. KAFLI
Breyting á sjómannalögum, nr. 35/1985.
3. gr.
36. gr. laganna orðast svo:
Ef skipverji forfallast vegna sjúkdóms eða meiðsla sem hann verður fyrir meðan á ráðningartíma stendur skal hann eigi missa neins af launum sínum í hverju sem þau eru greidd svo lengi sem hann er forfallaður af framangreindum ástæðum, þó ekki lengur en tvo mánuði. Sé skipverji í launalausu fríi er hann veikist eða slasast tekur hann laun frá þeim tíma er hann skyldi hefja störf að nýju. Skipverji, sem forfallast vegna veikinda, á þó ekki rétt til launa í fleiri daga en hann hefur verið í þjónustu útgerðarmanns.
Hafi skipverji verið ráðinn á sama skip hjá sama útgerðarmanni í tvö ár samfellt skal hann, auk þess sem í 1. mgr. segir, halda föstu kaupi, kauptryggingu eða sérlega um
Skipverji, sem forfallast frá vinnu vegna slysa við vinnu, á leið til eða frá vinnu eða vegna atvinnusjúkdóma sem stafa af vinnunni, skal fá greitt fast kaup, kauptryggingu eða sérlega umsamið veikindakaup í allt að þrjá mánuði til viðbótar greiðslum skv. 1. og 2. mgr.
Skipverji á ekki rétt á kaupi þann tíma sem hann hliðrar sér ólöglega hjá að inna störf sín af hendi né fyrir þann tíma sem hann er óstarfhæfur vegna sjúkdóms eða meiðsla sem hann hefur leynt vísvitandi við ráðningu sína. Sama gildir ef skipverji er ekki starfhæfur vegna sjúkdóms eða meiðsla sem hann hefur sjálfur bakað sér af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.
Nú vill skipverji neyta réttar síns skv. 1., 2. og 3. mgr. og skal hann þá, ef atvinnurek
Til forfalla frá vinnu vegna sjúkdóms eða slysa samkvæmt lögum þessum teljast hvers kyns aðgerðir sem taldar eru nauðsynlegar af læknisfræðilegum ástæðum, rannsóknir og önnur meðferð að læknisráði enda þótt skipverji hafi ekki verið óvinnufær við upphaf læknismeðferðar. Heilbrigðir líffæragjafar njóta réttar til launa í forföllum vegna líffæra
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Markmið með frumvarpi þessu er tvíþætt. Annars vegar er lögð til lagabreyting sem stuðlar að því að jafna rétt launþega hér á landi til launa í veikindaforföllum. Hins vegar er lagt til að kveðið verði sérstaklega á um rétt tiltekins hóps manna, heilbrigðra líffæra
Um rétt launþega til launa í veikindaforföllum gilda lög nr. 19/1979, sem ná til land
Í stuttu máli má segja að réttarþróun undanfarinna ára hafi aukið misrétti milli ein
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem tryggja eiga rétt launþega til greiðslu launa í forföllum að læknisráði án þess að gert sé að ófrávíkjanlegu skilyrði að viðkomandi sé óvinnufær. Þá er einnig lagt til í frumvarpinu að réttur heilbrigðra líffæragjafa verði tryggður sérstaklega. Enn hefur ekki reynt á rétt þessa hóps fyrir dómstólum en þegar hafa komið upp dæmi um að atvinnurekendur neiti að greiða heilbrigðum líffæragjöfum laun vegna fjarvista þeirra við líffæragjöf, enda þótt margir vinnuveitendur muni væntan
Eins og að framan greinir hafa opinberir starfsmenn fengið viðurkenndan rétt til greiðslu launa vegna forfalla vegna tæknifrjóvgunar sem eru að vissu leyti einnig aðgerð
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í þessari grein er lagt til að réttur launþega til launa í veikindaforföllum verði rýmkað
Um 2. gr.
Hér er lagt til að fellt verði brott skilyrði um að menn séu óvinnufærir, sbr. það sem segir í greinargerð. Í stað þess er lagt til að kveðið verði á um að forföll hafi verið óhjá
Um 3. gr.
Hér er lögð til sú grundvallarbreyting á rétti sjómanna til launa í veikindaforföllum að ekki verði lengur gert að skilyrði að viðkomandi sé óvinnufær, enda hefur það skilyrði þrengt verulega rétt sjómanna þar sem þeir geta eðli málsins samkvæmt ekki leitað sér lækninga fyrr en að lokinni veiðiferð. Þannig hefur ósérhlífni sjómanna, sem reyna að vinna störf sín til loka veiðiferðar, þrátt fyrir óumdeilanleg veikindi, leitt til brottfalls réttar til veikindalauna. Þá er lagt til að ekki verði tiltekið í 5. mgr. að vottorð læknis varði „veikindi“ eða „slys“ og er sú breyting í samræmi við þá breytingu sem lögð er til á 36. gr. Bent skal á ákvæði 3. mgr. 8. gr. laganna sem veitir útgerðarmanni rétt til að kanna hvort sá sem vill ráða sig á skip sé haldinn sjúkdómi eða meiðslum sem gerir hann ófæran til að gegna skipsstörfum og á 33. gr. laganna um skyldu skipverja til að gangast undir læknisrannsókn að kröfu skipstjóra.
Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.