Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 176 . mál.


193. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um ferðakostnað sjúklinga.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hvaða reglur gilda af hálfu ríkisins um greiðslu ferðakostnaðar sjúklinga sem sendir eru af læknum milli landshluta til læknismeðferðar og ferðast
a. í sjúkraflugi,
b. með almennum samgöngutækjum,
c. á eigin vegum?


Skriflegt svar óskast.