Ferill 404. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 404 . mál.


646. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um rétt til veiða í efnahagslögsögu Íslands, nr. 13 30. mars 1992.

(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994–95.)



1. gr.


    1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:
    Fiskveiðar í efnahagslögsögu Íslands mega eftirtaldir aðilar einir stunda:
     a .     Íslenskir ríkisborgarar og aðrir íslenskir aðilar.
     b .     Íslenskir lögaðilar sem að öllu leyti eru í eigu íslenskra aðila eða íslenskra lögaðila sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
               i.    Eru undir yfirráðum íslenskra aðila.
              ii.    Eru ekki í eigu erlendra aðila að meira leyti en 25%, sé miðað við hlutafé eða stofnfé.
          iii.    Eru að öðru leyti í eigu íslenskra ríkisborgara, eða íslenskra lögaðila sem eru undir yfirráðum íslenskra aðila.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er flutt í tengslum við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 34 25. mars 1991, um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, sbr. lög nr. 121/1993. Eru breytingar þessa frumvarps, sem nú er flutt, gerðar til samræmis við breytingar á því frumvarpi. Af frumvörpun um leiðir sú breyting að nú verður óbein fjárfesting í sjávarútvegi heimil þótt verulegar tak markanir séu þar enn á. Því verður ekki lengur með lögunum komið í veg fyrir beina erlenda eignaraðild að lögaðila sem á í fyrirtæki sem stundar fiskveiðar í efnahagslögsögu Íslands. Sú beina eignaraðild er hins vegar takmörkuð við 25% hlutafjár eða stofnfjár. Auk þess er sú krafa gerð að það fyrirtæki sem á í útgerðarfyrirtækinu sé undir íslenskum yfirráðum. Að sjálfsögðu er ætlast til þess að einstök orð og hugtök frumvarpsins hafi sömu merkingu og þau hafa í frum varpi til laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34 25. mars 1991, sbr. lög nr. 121/1993. Er því almennt vísað til þess frumvarps og athugasemda við það. Þó verður ekki hjá því komist skýrleikans vegna að greina hér sérstaklega frá því sem þar segir um hugtökin ís lenskan lögaðila, íslenskan aðila og yfirráð íslenskra aðila. Í lokamálsgrein 1. gr. áðurnefnds frumvarps segir orðrétt:
    „Með íslenskum lögaðila í 4. og 5. gr. er átt við lögaðila með heimili hér á landi. Með íslenskum aðila í 4. og 5. gr. er átt við ríkissjóð og sveitarfélög svo og stofnanir, fyrirtæki og sjóði hér á landi í fullri eigu þeirra, íslenska ríkisborgara sem eiga lögheimili hér á landi og lögaðila sem eiga heimili hér á landi og eru að öllu leyti í eigu opinberra aðila hér á landi, íslenskra ríkis borgara sem eiga lögheimili hér á landi eða annarra lögaðila sem eiga heimili hér á landi og eru að öllu leyti í eigu íslenskra ríkisborgara sem eiga lögheimili hér á landi.“
    Auk þess er rétt til glöggvunar að geta þess að í 2. gr. ofangreindra laga er hugtakið erlendur aðili skilgreint svo: „Einstaklingur, búsettur erlendis, án tillits til ríkisfangs, félag, stofnun, sjóður eða annar lögaðili sem á heimili erlendis, erlent ríki og ríkisfyrir tæki, svo og atvinnufyrirtæki undir erlendum yfirráðum. Einstaklingur telst búsettur er lendis ef hann á lögheimili erlendis eða á þar heimili samkvæmt skilgreiningu lögheim ilislaga. Lögaðili telst eiga heimili erlendis ef hann er skráður til heimilis erlendis eða tel ur heimili sitt erlendis samkvæmt samþykktum sínum.“ Bein fjárfesting í sjávarútvegi er eftir sem áður óheimil.



Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum


um rétt til veiða í efnahagslögsögu Íslands, nr. 13 30. mars 1992.


    Með frumvarpi þessu er ætlunin að heimila fjárfestingu erlendra aðila í sjávarútvegi. Óbein fjárfesting erlendra aðila verður heimil en bein fjárfesting takmarkast við 25% hlutafjár eða stofnfjár. Frumvarp þetta er í samræmi við frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34 25. mars 1991, sbr. lög nr. 121/1993.
    Ekki verður séð að frumvarp þetta hafi kostnaðarauka í för með sér fyrir ríkissjóð. Það kemur í hlut eftirlitssviðs Seðlabanka Íslands að fylgjast með erlendum fjárfestingum á Íslandi almennt og framfylgd þessa frumvarps sérstaklega, verði það að lögum. Seðla bankinn mun ekki verða fyrir kostnaðarauka af þeim sökum. Auk þess starfar þingkjör in nefnd um erlenda fjárfestingu skv. 10. gr. laga nr. 34/1991 sem hefur eftirlit með er lendri fjárfestingu hér á landi. Ekki er gert ráð fyrir að sú nefnd verði fyrir kostnaðar auka af þessum sökum.