Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1169, 120. löggjafarþing 510. mál: almannatryggingar (sérfæði).
Lög nr. 100 14. júní 1996.
Tryggingaráð setur reglur um greiðslu styrkja skv. a-, b- og g-liðum. Afla skal greiðsluheimildar frá Tryggingastofnun ríkisins fyrir fram. Tryggingastofnun getur áskilið vottorð sérfræðings um nauðsyn hjálpartækis, þjálfunar, næringarefnis eða sérfæðis.
Þingskjal 1169, 120. löggjafarþing 510. mál: almannatryggingar (sérfæði).
Lög nr. 100 14. júní 1996.
Lög um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 1. mgr. 33. gr. laganna bætist nýr stafliður, er verður g-liður, svohljóðandi: Að veita styrk til kaupa á næringarefnum og sérfæði sem lífsnauðsynlegt er vegna hamlaðrar líkamsstarfsemi.2. gr.
3. mgr. 33. gr. laganna orðast svo:Tryggingaráð setur reglur um greiðslu styrkja skv. a-, b- og g-liðum. Afla skal greiðsluheimildar frá Tryggingastofnun ríkisins fyrir fram. Tryggingastofnun getur áskilið vottorð sérfræðings um nauðsyn hjálpartækis, þjálfunar, næringarefnis eða sérfæðis.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 4. júní 1996.