Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1185, 120. löggjafarþing 483. mál: iðnaðarmálagjald (atvinnugreinaflokkun).
Lög nr. 81 11. júní 1996.
Til iðnaðar telst öll starfsemi sem fellur undir atvinnugreinanúmer sem upp eru talin í viðauka við lög þessi.
Undanþegin gjaldinu eru fyrirtæki sem að öllu leyti eru í eign opinberra aðila, svo og fyrirtæki sem stofnuð eru samkvæmt sérstökum lögum til að vera eign opinberra aðila að verulegu leyti nema annars sé getið í þeim lögum.
Viðauki.
Til iðnaðar skv. 1. mgr. 2. gr. skulu teljast eftirtaldar atvinnugreinar samkvæmt Íslenskri atvinnugreinaflokkun, ÍSAT 95:
Þingskjal 1185, 120. löggjafarþing 483. mál: iðnaðarmálagjald (atvinnugreinaflokkun).
Lög nr. 81 11. júní 1996.
Lög um breyting á lögum nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald.
1. gr.
2. mgr. 1. gr. laganna fellur brott.2. gr.
2. gr. laganna orðast svo:Til iðnaðar telst öll starfsemi sem fellur undir atvinnugreinanúmer sem upp eru talin í viðauka við lög þessi.
Undanþegin gjaldinu eru fyrirtæki sem að öllu leyti eru í eign opinberra aðila, svo og fyrirtæki sem stofnuð eru samkvæmt sérstökum lögum til að vera eign opinberra aðila að verulegu leyti nema annars sé getið í þeim lögum.
3. gr.
Við lögin bætist nýr viðauki sem verður hluti af lögum þessum og orðast svo:10 | Kolanám og móvinnsla. |
11 | Vinnsla á hráolíu, jarðgasi o.fl. |
12 | Nám á úran- og þórínmálmgrýti. |
13 | Málmnám og málmvinnsla. |
14 | Nám og vinnsla annarra hráefna úr jörðu. |
Úr 15 | Matvæla- og drykkjarvöruiðnaður: |
15.20.8 | Lagmetisiðja og framleiðsla sjávarrétta. |
15.3 | Vinnsla ávaxta og grænmetis. |
15.43 | Framleiðsla smjörlíkis og svipaðrar feiti til manneldis. |
15.6 | Framleiðsla á kornvöru, mjölva og mjölvavöru. |
15.7 | Fóðurframleiðsla. |
15.8 | Annar matvælaiðnaður. |
15.9 | Drykkjarvöruiðnaður. |
16 | Tóbaksiðnaður. |
17 | Textíliðnaður. |
18 | Fataiðnaður; sútun og litun loðskinna. |
19 | Leðuriðnaður. |
20 | Trjáiðnaður. |
21 | Pappírsiðnaður. |
22 | Útgáfustarfsemi og prentiðnaður. Þó ekki 22.31, fjölföldun hljóðritaðs efnis, og 22.32, fjölföldun myndefnis. |
23 | Framleiðsla á koxi, olíuvörum og kjarnorkueldsneyti. |
24 | Efnaiðnaður. |
25 | Gúmmí- og plastvöruframleiðsla. |
26 | Gler-, leir- og steinefnaiðnaður. |
27 | Framleiðsla málma. |
28 | Málmsmíði og viðgerðir. |
29 | Vélsmíði og vélaviðgerðir. |
30 | Framleiðsla á skrifstofuvélum og tölvum. |
31 | Framleiðsla og viðgerðir annarra ótalinna rafmagnsvéla og tækja. |
32 | Framleiðsla og viðgerðir fjarskiptabúnaðar og tækja. |
33 | Framleiðsla og viðhald á lækningatækjum, mæli- og rannsóknartækjum, úrum o.fl. |
34 | Framleiðsla vélknúinna ökutækja annarra en vélhjóla. |
35 | Framleiðsla annarra farartækja. |
36 | Húsgagnaiðnaður, skartgripasmíði, hljóðfærasmíði, sportvörugerð, leikfangagerð og annar ótalinn iðnaður. |
37 | Endurvinnsla. |
45 | Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð. |
Úr 50 | Sala, viðhald og viðgerðir á bílum o.fl.; bensínstöðvar: |
50.2 | Bílaviðgerðir og viðhald; hjólbarðaviðgerðir. |
52.7 | Viðgerðir á hlutum til einkanota og heimilisnota. |
72 | Tölvur og tölvuþjónusta. |
Úr 74 | Önnur viðskipti og sérhæfð þjónusta: |
74.81 | Ljósmyndaþjónusta. |
Úr 93 | Önnur persónuleg þjónustustarfsemi: |
93.02 | Hárgreiðslu- og snyrtistofur. |
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi nú þegar.Samþykkt á Alþingi 4. júní 1996.