Frsm. kjörbréfanefndar (Sólveig Pétursdóttir):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 3. varaþingmanns Samtaka um kvennalista í Reykn., Birnu Sigurjónsdóttur aðstoðarskólastjóra, sem landskjörstjórn gaf út 31. janúar sl., en 1. og 2. varaþingmaður samtakanna í kjördæminu, Bryndís Guðmundsdóttir kennari og Kristín Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, geta ekki tekið sæti á Alþingi að þessu sinni.
Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið og ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.