Kristín Ástgeirsdóttir:
Hæstv. forseti. Með þessari grein er verið að setja á fót nýja ríkisstofnun og samkvæmt mínum útreikningum munu nálægt 120 manns koma bara að stjórnunarstörfum þessarar stofnunar og undirstofnana hennar. Ég spyr, hæstv. forseti: Hvað er orðið um þá sem einu sinni hrópuðu: Báknið burt? Hvar eru þeir nú?
Við kvennalistakonur erum á móti þessu bákni og teljum málaflokkinn betur kominn hjá sveitarfélögunum.