Guðmundur Árni Stefánsson (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Ég skildi orð hæstv. fjmrh. á þann veg að sú viljayfirlýsing sem er að finna í þessari tillögu, þessum nýja lið í 6. greinar heimildum, verði upp tekin við 3. umr. í ljósi yfirlýsinga hæstv. heilbrrh. frá í gærkvöldi, með öðrum orðum að andvirði sölunnar á landi í eigu Vífilsstaða verði notað til byggingar barnaspítala. Í trausti þess er tillagan dregin til baka til 3. umr.