Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 207 . mál.


246. Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um smáfiskaskiljur.

Frá Arnbjörgu Sveinsdóttur.



    Hver hefur þróunin verið í rannsóknum og tilraunum með smáfiskaskiljur?
    Telur ráðherra að fyrir hendi séu skilyrði til þess að lögleiða smáfiskaskiljur eða að eðlilegra sé að loka ákveðnum svæðum fyrir togveiðum ef smáfiskaskilja er ekki notuð?